• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Skemmtigarðurinn í Grafarvogi
Deila á Facebook
Skemmtigarðurinn í Grafarvogi Prenta Senda frétt
SkemmtigarðurinnFjörefli býður nú uppá fjölbreytta afþreyingu á nýju svæði í Skemmtigarðinum í Grafarvogi þar sem aðaláherslan er á hópefli, útivist og skemmtun.  Helstu viðskiptavinir garðsins eru fyrirtæki, félagasamtök, ferðaskipuleggjendur, skólar, fjölskyldur og einstaklingar á öllum aldri.

Þetta kemur fram á heimasíðu Skemmtigarðsins

Meðal afþreyingar sem í boði er má nefna hópefli til að efla samvinnu og lærdóm í gegnum skemmtilega leiki. Meðal hópeflisleiða má nefna hlutverkaleiki, ratleikir, þrautabrautir og þemadaga. 

Einnig er í boði lasertag á staðnum eða á vinnustöðum fyrirtækja. Ef farið er í lasertag á staðnum eru í boði þrír skemmtilegir vellir.

Litbolti sem áður var starfræktur í Lundi, Kópavogi og Straumi hefur nú flust í Skemmtigarðinn. Litbolti er leikur þar sem aðaltilgangurinn er að allir skemmti sér. Litbolti er spilaður um allan heim þar sem kyn, þjóðerni eða aldur skiptir engu máli. Litbolti þykir henta vel sem hluti af hópefli fyrirtækja og hópa til að ná settum markmiðum undir öðruvísi kringumstæðum en á vinnustað.

Skemmtigarðurinn er opinn alla daga ársins og er pöntunarsími 534-1900. 
Hér getur þú séð hvar garðurinn er staðsettur

 
karoki