• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow SBK býður fjölbreyttar ferðir
Deila á Facebook
SBK býður fjölbreyttar ferðir Prenta Senda frétt

SBK bjóða upp á ýmis konar ferðamöguleika.

 

 

Í Óvissu- og Ævintýraferðunum bjóða þeir  upp á tvo möguleika.  Annars vegar er um að ræða tilbúna ferðapakka sem hægt er að taka óbreytta eða laga að sínum óskum. Hinn möguleikinn er að hópurinn komi með hugmyndir og þeir sjái um að búa til skemmtilega ferð eftir þínum óskum.

Annars eru skipalagðar ferðir fjölbreyttar og hægt er að aðlaga þær að hverjum hópi fyrir sig. Dæmi um ferðir sem boðið er uppá

 

Reykjanesið & sigling

Hafsúlan
Dekurliðið sótt á höfuðborgarsvæðið kl. 14:00  . Bláa lónið og léttur hádegisverður. Gjáin, Saltfisksetrið í Grindavík, Reykjanesviti,Gunnuhver, Stampar og fleira Kl. 18:00 Sigling með Hafsúlunni frá Ægisgarði í Reykjavík. Kvöldverður um borð í skipinu og opinn bar. Komið aftur í höfn kl. 21:00. Matseðill: Blandað hlaðborð. Lágmarksfjöldi er 40 manns.

 

Bláa lónið & undirdjúpin

Hefur þig ekki alltaf dreymt um að fá að skoða undirdjúpin og synda með höfrungum? Ef svo er, þá er byrjunin að skella sér á kynningu í sportköfun með Sportköfunarskóla Íslands. Við sækjum ykkur um kl. 13:00 og ökum til Keflavíkur, þar sem allir fá að kynnast sportköfun. Kynningin fer fram í gömlu Sundhöllinni. Á eftir er möguleiki að fara í Bláa lónið til að slappa af. Ferðalok um kl. 18:00

 

Hasarferðin

Þetta er sannkölluð "action" ferð þar sem þátttakendur hafa mikið fyrir stafni.  Hópurinn er sóttur kl. 14:00 og byrjað á að fara á hestbak. Eftir skemmtilegan útreiðatúr í fallegu umhverfi er farið á skauta í skautahöllinni í Laugardal þar sem fólk keppist við að sýna listir sínar.  Eftir hasarinn er tilvalið fyrir hópinn að láta keyra sig á notalegt veitingahús.
 

Nánari upplýsingar um ferðir er að finna á heimasíðu www.sbk.is

 

Heimild: vefsíða www.sbk.is 

 
hollywood