• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Draugasetrið Stokkseyri
Deila á Facebook
Draugasetrið Stokkseyri Prenta Senda frétt

 Draugasetrið er staðsett á þriðju hæð í Lista og menningarverstöðinni á Stokkseyri. Gengið er í Draugasetrið inn af gömlu bryggjunni.

 



Draugabarinn

Þegar inn er komið blasir Draugabarinn við en þar er einnig afgreiðsla fyrir setrið sjálft. Inni á Draugabarnum eru reyndar nokkrir draugar og ber þar helst að nefna Brennivínsdrauginn sjálfan sem situr uppí rjáfri í einu horninu. Útilokað var að hann fengið sína aðstöðu annars staðar en inná barnum og unir hann sér oftast nær mjög vel. Einnig má finna matardisk Kampholtsmóra inná barnum en aðstandendur Draugasetursins sjá til þess að á honum sé alltaf matur því tilfellið er að móri mun hafa verið mun hliðhollari þeim sem hann fylgdi ef þeir gáfu honum mat. Draugabarinn sjálfur er um 250 m2 og þar geta gestir keypt sér eitthvað styrkjandi áður og eftir að þeir fara inní setrið sjálft en leyfilegt er að taka með sér mjöð í dósum af barnum þegar haldið er inní óvissuna.

Draugasögur

Hver og einn gestur fær í hendur geislaspilara með 24 draugasögum áður en farið inná setrið sjálft. Sögurnar eru til á íslensku, ensku, þýsku, frönsku, skandinavisku, japönsku og rússnesku.  Það fara tveir og tveir saman inn í óvissuna og það líða ein til tvær mínútur á milli hverra tveggja. Sögurnar eru í heildina um 40 mín. og hægt er að skipta um sögu og fara yfir í næstu rétt eins og skipt er um lag á geisladisk. Þegar búið er að kveikja á spilaranum er haldið inná setrið og beygt til vinstri. Það eina sem þarf að gæta er að í upphafi hverrar sögu segir sögumaður númer hvað sagan er og það númer á að passa við númerin sem sjást hanga við hvert rími fyrir sig en þau eru jafn mörg sögunum.

Draugar

Draugasetrið er um 1.000 m2 völundarhús og þar sem talsvert myrkur er í sumum rímunum er mikilvægt að hlusta eftir sögunúmerum í byrjun hverrar sögu og gæta þess vandlega að það númer passi við þá sögu sem hlustað er á. Flestar sögurnar eru stuttar en sumar heldur lengri en þá er hægt að tilla sér niður og gefa sér tíma til að hlusta áður en haldið er áfram. Mikilvægt er að gefa öllum þeim draugum sem þarna eru góðan gaum, ekki hvað síst í herbergi númer 19 en í því er hella sem nauðsynlegt er að lyfta upp til að sjá það sem undir henni hvílir.

Allar myndatökur eru bannaðar inná setrinu sjálfu og er það gert til að vernda draugana en ekki síður þá sem taka myndirnar því ekki viljum við að nokkur maður lendi í því að gera einhvern drauginn illan. Að sjálfsögðu gildir þessi regla einnig um aðstandendur setursins og því eru þær myndir sem við getum sýnt hér inni á þessari síðu, fyrst og fremst af Draugabarnum sjálfum.

Draugasetrið er almennt ekki hugsað fyrir gesti yngri en 12 ára sem þó mega fara inn í fylgd með fullorðnum og þá algjörlega á þeirra ábyrgð. Mælumst við þá til að þeir gangi fyrir aftan þá sem eldri eru og hljóti af þeim nokkra vernd.

Opnunartími

Sumartími 
kl. 13-20 alla daga

Vetrartími
laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-18 og alla dagar frá 21-22

24.12.07 - 1.3.08
einungis opið um helgar

Hægt er að panta fyrir hópa í annan tíma.

Verð inná Draugasetrið

1.500.- fyrir fullorðna
990.- fyrir eldri borgara (67 ára og eldri)
990.- fyrir 12-16 ára
Frítt fyrir 11 ára og yngri í fylgd með forráðamönnum en 500 kr. ef þeir fá einnig geislaspilara

 

Tekið af heimasíðu Draugasetursins www.draugasetrid.is

 
hollywood