• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Fjórhjólaferðir við Geysi
Deila á Facebook
Fjórhjólaferðir við Geysi Prenta Senda frétt

Fyrirtækið SÖS ehf býður upp á fjórhjólaferðir við Geysi í Haukadal, u.þ.b. 90 mínútna akstur frá Reykjavík. Boðið er uppá fjórhjólaferðir um Haukadalsskóg, þar sem ekið er um torfarna slóða í skóginum yfir ár og læki og uppá Haukadalsheiði.

Leiðirnar eru fjölbreyttar og valdar með tilliti til hópsins sem ferðast er með hverju sinni. Frábær leið til að kynna landið fyrir erlendum ferðamönnum í nágrenni við Gullfoss og Geysi.

Í boði eru ferðir við allra hæfi, allt frá klukkutíma ferðum til dagsferða. Einnig er boðið uppá lengri ferðir í nokkra daga um hálendi landsins.

Í klukkutímaferðum er farið um Haukadalsskóg uppá Haukadalsheiði, þar sem við blasa Jarlhetturnar með Langjökul í baksýn. Slóðirnar í skóginum veljum við með tilliti til getu og samsetningar hópsins hverju sinni. Ekið er yfir fallegar bergvatnsár um hávaxinn skóg og uppá heiði þar sem andstæðurnar taka við, sandurinn og auðnin.

Í dagsferðum er farið upp að Hagavatni, sem er jökullón austan undir Hagafelli í Langjökli. Þar er stórkostlegt að sjá jökulinn brotna ofan í lónið og afrennsli vatnsins, Farið, þar sem það brýst fram af miklum krafti, niður í gljúfur með fossum og flúðum, um 100 m niður á jafnsléttu.

SÖS hefur langa reynslu af skipulagningu ferða um hálendið, jafnt að sumri sem vetri. Reyndir leiðsögumenn, öll öryggistæki og búnaður sem til þarf, aðgangur að fallegum fjallaskálum, fyrsta flokks matur og allt sem til þarf. Láttu fagmennina um að skipuleggja fyrir þig ævintýraferð um hálendið.

A T H. allt að 45 manns í hverri ferð.

Heimild:www.4hjol.is

 

 

 
hollywood