• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Næturlífið - sjá allt arrow Austfirðingaball á Spot - 12. MAR
Deila á Facebook
Austfirðingaball á Spot - 12. MAR Prenta Senda frétt
Það er orðið ljóst næsta Austfirðingaball verður á SPOT Kópavogi 12. mars 2010. Dagskráin er hnitmiðuð og óvenju glæsileg og að þessu sinni enda tvær sannkallaðar stórstjörnur sem mæta til leiks.

MAGNI „okkar“ Ásgeirsson verður sjálfsögðu fremstur meðal jafningja og í ár var ákveðið að breyta út af hefðinni og leita út fyrir austfirðina og fengin var einn vinsælasti söngvari þjóðarinnar til að troða upp á næsta Austfirðingaballi. Við erum að sjálfsögðu að tala um stórsnillinginn INGÓ Veðurguð, hvað annað! Rokkabillýbandið rokkar undir hjá stórstjörnunum líkt og síðast enda þar valin maður í hverju rúmi svo ekki sé meira sagt og óhætt að fullyrða að hér sé í uppsiglingu eitt magnaðasta Austfirðingaball sem haldið hefur verið.

Tilboð verða í gangi á www.flugfelag.is og að venju hvetjum við fólk til að mæta í fyrra fallinu og forðast biðraðir en bendum einnig á að nóg rými er í hinum glæsilegu húsakynnum SPOT svo vel ætti að fara um alla.

Miðaverð er kr. 1800 og miðasala hefst kl. 21:00.

Góða skemmtun.

 
Glaumbar