• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Hópaferðir Guðmundar Tyrfingssonar
Deila á Facebook
Hópaferðir Guðmundar Tyrfingssonar Prenta Senda frétt
Hópaferðir njóta sífellt meiri vinsælda með hverju árinu sem líður og hafa starfsmenn Guðmundar Tyrfingssonar ehf oftar en ekki aðstoðað fólk við skipulagningu slíkra ferða.

Hver ferð er löguð að aldri, áhugasviði og stærð hóps og hentar á þann hátt öllum hópum. Boðið er upp á hina ýmsu afþreyingu og sjá má hinar ýmsu ferðir á ferðasíðunni.

Að auki hefur Guðmundur Tyrfingsson yfirsýn yfir aðra afþreyingu sem hægt er að nota til að púsla saman hinni skemmtilegustu ferð, sem dæmi má nefna kayak ferðir, flúða ferðir, útreiðatúra, baðstaði, bátsferðir og fleira og fleira.

Guðmundur Tyrfingsson ehf skipuleggur ferðir út um allt land. Hér eru nokkur dæmi um tilbúnar ferðir:

 

Nýja Álfa-, trölla- og norðurljósasafnið!
Heitasti smellurinn - kaldasti barinn

Nýja safnið Icelandic Wonders er staðsett á Stokkseyri í sama húsi og Draugasetrið. Safn þetta er 1.200 m2 og býðst gestum að ganga inn í heim álfa og trölla. Þar er hægt að skyggnast inn í líf þeirra og dagleg störf þó hápunkturinn sé líklega heimsókn inn í 200 m2 frysti þar sem norðurljósin leika stórt hlutvert. Þar er tilvalið að fá sér norðurljósakokteill í litum norðuljósanna.

Meira



Að lifa af í skóginum

Í þessari ferð er farið í Haukadalsskóg. Frábær skógur og skemmtilegt umhverfi sem hæfir vel viðfagnsefni þessarar ferðar sem er að lifa af. Búið er að koma upp 15 spennandi þrautum víðsvegar um skóginn þar sem farþegum gefst færi á að spreyta sig hvort heldur sem er í liða- eða einstaklingskeppni. Þrautir þessar reyna mest á jafnvægi, kjark og þor og geta verið einkar heppilegar til að efla liðsheild og samvinnu. Hægt er að velja úr þrautum og sleppa þraut t.d. ef svo ólíklega vill til að ekki séu allir spenntir fyrir bragðgóðum ánamöðkum.

Meira



Ferð á Draugasetrið á Stokkseyri

Draugasetrið á Stokkseyri hefur vakið feikimikla lukku og í þessari ferð er það hápunktur ferðarinnar. Auk setursins er sá möguleika að fara upp í Knarrarósvita sem einnig er skemmtileg lífsreynsla, hlusta og horfa á listaverkið Brennið þið vitar og heimsækja þá fjölmörgu listamenn sem hafa aðsetur og sýningaraðstöðu undir sama þaki og Draugasetrið.

Meira

 

Með hópeflissérfræðingum og stuðboltum í Adrenalíngarðinum

Frá Reykjavík er ekin Nesjavallaleiðin og stoppað aðeins til að njóta fagurrar náttúru á leiðinni. Þegar á Nesjavelli er komið taka hópeflissérfræðingarnir og stuðboltarnir í Adrenalíngarðinum við hópnum...

Meira

 

Heimild:www.gtyrfingsson.is

 

 
hollywood