• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Vatnajökull Travel
Deila á Facebook
Vatnajökull Travel Prenta Senda frétt

VatnajökullFyrirtækið Vatnajökull Travel var stofnað í júlímánuði árið 2005 af Guðbrandi Jóhannssyni sem einnig er eigandi fyrirtækisins. Vatnajökull Travel leggur áherslu á akstur og ferðapakka í ríki Vatnajökuls þar sem margskonar afþreying er í boði allt árið um kring! Á köldum og dimmum vetrardögum er boðið upp á rómantískar ferðir í Hornafjörðinn þar sem margar af okkar perlum eru sóttar heim.

Má þar nefna Jökulsárlón og Hoffelsjökul sem heyrir undir Vatnajökulsþjóðgarð. Við Hoffell eru heitir pottar úti í náttúrunni þar sem gott er að láta líða úr sér eftir ævintýralegan dag áður en haldið er út í myrkrið í leit að norðurljósum.

Yfir sumartímann er boðið upp á spennandi ferðir upp á Vatnajökul þar sem upplagt er að skella sér á snjósleða, ferðir á Suðurfjörur þar sem gaman er þeysast um á fjórhjólum og fræðast um sögu svæðisins og bátsferðir á hinu rómaða Jökulsárlóni.

Hafir þú séróskir um dvöl í ríki Vatnajökuls hafðu samband við Vatnajökull Travel og þeir setja saman ógleymanlega ferð fyrir þig og þína!

Heimasíða Vatnajökull Travel

 
karoki