• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Tónlist - sjá allt arrow Reykjavík Folk Festival
Deila á Facebook
Reykjavík Folk Festival Prenta Senda frétt

Hljómsveitin South River Band heldur upp á 10 ára afmæli sitt með því að halda Reykjavik Folk Festival - tónlistarhátíð með áherslu á þjóðlaga- og heimstónlist. Reykjavik Folk Festival fer fram á Kaffi Rósenberg dagana 10.-13. mars og alls koma fram 14 hljómsveitir. Þær eru allar íslenskar í ár en í ráði er að gera Reykjavik Folk Festival að árlegum viðburði og fá erlenda listamenn jafnt sem innlenda til að taka þátt.

Fram koma: Nesi Sjana Og hinar kerlingarnar, KK, Spaðar, Narodna Musika, Hrafnar, Rósin Okkar, Fedorov tríó. Guitar Islancio, Sniglarnir, Ljótu hálfvitarnir, Gísli Helgason, Gæðablóð, Varsjárbandalagið og South River Band.

Tónlistarunnendum gefst kostur á að kaupa passa sem gildir á alla viðburði hátíðarinnar. (ath takmarkað magn Passa er í boði)

 
Glaumbar