• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Óvissa ehf skipuleggur hópaferðir
Deila á Facebook
Óvissa ehf skipuleggur hópaferðir Prenta Senda frétt

Óvissa ehf sérhæfir sig í skipulagningu hvers kyns hópferða; s.s. starfsmannaferða, óvissuferða, gæsa- og steggjaferða, útskriftarferða úr skólum og hvað eina þar sem skemmtun og samheldni hópsins er í hávegum höfð.

Óvissa ehf leggur mikið upp úr að veita gæða þjónustu og er kappkostað að hver einasti hópur fari sérlega ánægður frá ferð sinni. En á hverju ári hafa um 100 hópar farið á okkar vegum.  Það er gríðarlega mismunandi hvernig hóparnir eru samansettir og uppbyggðir, en þetta eru allt frá 8-10 manns upp í 250 manns

Ferðahugmyndir:

Borgfirzk blanda
Við ökum um Hvalfjörð og fáum leiðsögumann til þess að hitta okkur á leiðinni. Heyrum sögur og sagnir úr firðinum, bæði af galdrakonum og kvenskörungum, og ef tími vinnst til heyrum við eitthvað frá stríðsárunum.  Stoppum við Hvalstöðina þar sem boðið er upp á hrátt hrefnukjöt í sojasósu ásamt berjabruggi.  Þá förum við heim að Bjarteyjarsandi, en þar er mjög huggulegt listagallerí í gamla súrheysturninum. Kaffisopi og kleina þar. lesa meira

AdrenalínKIKK
Leiðin liggur í Adrenalíngarðinn á Nesjavöllum. Þar verður tekinn hreint frábær adrenalinpakki sem samanstendur af 10 metra háum staur, risarólu og stórskemmtilegu þrautaklifri. Í garðinum er búið að setja upp þrautabrautir, og þær krefjast alls ekki allar þess að fólk sé í hrikalegu formi, enda er aðaláherslan á það að fólk hugsi og vinni saman! Sé þess óskað er lítið mál að  bjóða upp á skipulagt hópefli og fleiri leiki og skemmtilegar þrautir sem allar byggja á samvinnu og góðum liðsanda. lesa meira 

Hreyfing,Hljómar og hollur matur
Í þessari ferð er farið á Reykjanesið. Fyrsti áfangastaður er í hljóðverinu hjá hinum síunga Magga Kjartans í Hafnarfirðinum þar sem hópurinn ræskir raddir og tekur upp lag...sem að sjálfsögðu er spilað í rútunni allan daginn!! Eftir sönginn er haldið til þeirra Sólveigar og Önnu í útjaðri byggðar í Grindavík, og þar sem tekinn er léttur hjólatúr með leiðsögn. Þær eiga ný hjól og allt sem heyrir til í slíkar ferðir.  Þaðan er svo farið í hellaskoðun í nágrenni Bláa lónsins þar sem boðið er upp á snafs neðan yfirborðs jarðar. lesa meira

Fjórhjólaævintýri
Ferðinni er heitið á Bolöldusvæðið við Litlu Kaffistofunni þar sem Lúxus Ævintýrareisur taka á móti hópnum. Hópurinn er nú gallaður upp og gerir sig  klára fyrir magnaða fjórhjólaferð. lesa meira

Flúðasigling
-ATH aðeins í apríl - september Sigld er 7 kílómetra leið gegnum falleg gljúfur og margvíslegar flúðir Hvítár. Hvítá er fallegt og hressilegt fljót í klukkutíma fjarlægð frá Reykjavík, þar hafa nú í 20 ár verið starfræktar vinsælustu flúðasiglingar landsins frá bátahúsinu Drumbó og henta siglingarnar á Hvítá öllum. Siglingin hefst við Veiðistaðinn og liðast niður fljótið gegnum flottar öldur og miðlungs stórar holur. Siglt er gegnum sérstæðar berg-myndanir í Brúarhlöðum og sé þess óskað fá ræðarar að stökkva þar af kletti í ánna. Skemmtileg og fjölbreytt sigling fyrir fjölskyldur, starfsmannahópa og skólakrakka. lesa meira

Desperate Housewives
Þessi ferð er hugsuð fyrir litla kvennahópa. Hún gengur út á það að láta dekra við sig, þó ekki sé nema dagpart. Dagurinn byrjar á því að farið er í létta afþreyingu, annað hvort á skauta eða í keilu.  Næst er haldið í heilsulind þar sem léttur dekurpakki tekur við, t.d. andlitsnudd eða axlanudd, vatnsgufa, heita potta og hvíldarhreiður.  Að endingu má svo hugsa sér að borða kvöldmat á einhverjum huggulegum veitingastað. lesa meira

 

Heimild: www.ovissuferdir.is

 
hollywood