• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Teitur - Hópaferðir
Deila á Facebook
Teitur - Hópaferðir Prenta Senda frétt
Teitur

TEITUR travel tekur að sér ferðaskipulagningu fyrir hópaferðir af öllu tagi. Dagskráin er alltaf klæðskerasaumuð eftir þörfum hvers hóps fyrir sig.

Óvissuferðir bera keim af ævintýrinu. Ferðin undirbúin í samráði við einhvern frá fyrirtæki, til dæmis yfirmann eða formann starfsmannafélags með algerri leynd. Því færri sem vita áætlun ferðarinnar, því betra.

Hægt er að skipuleggja hópa-og óvissuferð eftir hefðbundin vinnutíma, á kvöldin, heilan dag frá morgni til kvöld, frá hádegi og fram á kvöld og með gistingu yfir helgi; allt eftir þínum óskum. Teitur travel býður upp á fararstjórn þrautreyndra fararstjóra í hverri ferð þannig að ALLIR gestir geti einbeitt sér áhyggjulausir að skemmtun dagsins og þurfi ekki að pæla þeim fjölmörgu smáatriðum sem verða að vera í lagi í svona ferðum og geta tekið á vandamálum sem upp kunna að koma.

Við bjóðum einnig upp á hópefli af alvarlegra tagi í samráði við fagaðila ef ætlunin er að efla samstarfsandann, auka sölu, hvetja starfsmenn eða t.d. íþróttafélag til dáða. Við leggjum á það ríka áherslu að hver einasta óvissu eða hópaferð á vegum TEITStravel er klæðskerasaumuð - við nostrum við smáatriðin um leið og við missum aldrei sýn á heildarmyndina!

Afþreying sem sauma má inn í dagskránna:

Jöklaganga
Jöklaleikir
Vélsleðaferðir
Hundasleðaferðir
Hestaferðir
Flúðasigling
Snjóleikir af ýmsu tagi
Einkabíó
Keila
Kayaksigling
Fjallhjólaferðir / liðakeppni
Fjársjóðsleikur með GPS
Bogfimi
Gufubað á Laugarvatni
Sundlaugaheimsóknir út um allt land!
Hellaskoðun
Skautahöllin
Bláa lónið
Víkingarán í Fjörukránni
... og margt fleira

Lumar þú á hugmynd í tengslum við óvissuferð? Það er líklegt að Teitur travel geti látið hana rætast!

 

Heimild: www.teitur.is

 
hollywood