• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Deila á Facebook
Klifurhúsið Prenta Senda frétt
KlifurhúsiðKlifurhúsið tekur á móti hópum (10-30)manns ef pantað er með a.m.k. viku fyrirvara. Klettaklifur er íþrótt sem er nokkuð ný af nálinni hér á landi. Þeim sem hana stunda hefur þó fjölgað ört undanfarin ár og er hópur klifrara nú orðinn býsna stór.
Klifursvæði má nú finna í flestum landshlutum og er því af nógu að taka fyrir íslenska klifrara utan dyra yfir sumarmánuðina. Stóran þátt í þessari fjölgun klifrara á Íslandi má rekja til opnunar innanhússklifurveggjarins Vektors fyrir nokkrum árum og svo núna Klifurhússins, vorið 2002, eftir að Vektor missti sitt húsnæði.Klifur

Í nágrannalöndum okkar hafa risið klifurhús í öllum þeim borgum og bæjum sem vert er að nefna og hefur ásókn í slíka aðstöðu verið mikil og aukist stöðugt. Hefur þetta leitt til enn hraðari og meiri uppbyggingar íþróttarinnar. Klifurhúsið í Skútuvogi er dæmigerður grjótglímuveggur eins og þekkist annars staðar í heiminum.

Klifurhúsið er rekið af Klifurfélagi Reykjavíkur sem er íþróttafélag. Um 250 manns eiga kort í Klifurhúsinu og æfa reglulega og keppa. Þar að auki koma um 450 manns mánaðarlega að prófa að klifra, sjálfir eða með hinum ýmsu hópum. Aldur klifrara í Klifurhúsinu dreifist milli 2ja og 70 ára og koma gjarnan fjölskyldur saman að klifra. Markmið með rekstri Hússins er að halda opinni öflugri og fjölbreyttri æfingaaðstöðu fyrir íslenska klettaklifrara allan ársins hring.

Þótt það kunni að hljóma ótrúlega er klifur íþrótt sem hentar fólki af öllum stærðum, gerðum og aldri. Klifur snýst um tækni, liðleika, útsjónarsemi, einbeitingu og styrk. Íþróttin gerir þátttakendum kleift að velja sér viðfangsefni við hæfi, sigrast á þeim og halda áfram í næsta verkefni. Erfiðleikastigin eru mörg og misjöfn og henta jafnt byrjendum sem forföllnum klifurrottum. Klifur er þannig fyrirtaks líkamsrækt. Klifur er íþrótt fyrir alla, kellingar og kalla, stelpur og stráka, stutta og langa.

Klifur er ekki hættulaust frekar en aðrar íþróttir. Með því að fara að öllu með gát, athuga að að rétt sé að öllu farið og taka mið af aðstæðum er þó óhætt að fullyrða að öryggi klifrara er tryggt og að slysahætta sé síst meiri en í öðrum íþróttum.

Í Klifurhúsinu er boðið upp á svokallað "boulder" klifur sem útleggst grjótglíma á íslensku. Þykkar dýnur eru undir öllum klifurveggjum. Línur og annar útbúnaður er því óþarfur og það eina sem klifrari þarf eru skór og kalk.

Klifurskó og kalkpoka er hægt að fá leigða gegn vægu gjaldi í Klifurhúsinu. Einnig starfrækjum við litla verslun með m.a. skóm, kalkpokum og kalki.

Staðsetning: Klifurhúsið er í Skútuvogi 1G, í sama húsi og Raftækjaverslun Íslands. Bílastæði og inngangur er í portinu að neðan. Gengið er inn frá Barkarvogi.

Strætisvagnar 12 og 16 keyra eftir Sæbrautinni og stoppa nálægt Klifurhúsinu.

Opnunartímar VETUR 2007-2008
mánud: 12-13*, 17-22
þriðjud: 15-22
miðvikud: 12-13*, 17-22
fimmtud: 15-22
föstudagar: 16-21
helgar: 12-18

*fyrir þá sem eiga æfingakort í Klifurhúsinu.

 

Heimild: www.klifurhusid.is

 
hollywood