• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Adrenalíngarðurinn er einstakur
Deila á Facebook
Adrenalíngarðurinn er einstakur Prenta Senda frétt

Adrenalíngarðurinn er staðsettur á Nesjavöllum, 40 km frá Reykjavík og uþb 200 metra frá Hótel Nesbúð.

Vilt þú prófa eitthvað nýtt? Adrenalíngarðurinn býður upp á frábæra dagskrá sem fær adrenalínið til að flæða um líkamann, en með öryggið í fyrirrúmi.

 

Brot af þvi besta sem boðið er upp á.

 

Háloftabrautin

Háloftabrautin er skemmtileg dagskrá fyrir alla sem vilja takast á við spennandi hluti.

Í háloftabrautinni er glímt er við margar spennandi þrautir.  Fyrsta verkefnið er að komast upp í 10m hæð á pall 6 en þaðan liggja undarlegar brýr til allra átta.

Verkefnin í háloftabrautinni eru 12 og má þar nefna línudans, þar sem gengið er eftir 10mm vír um 8m leið og bjálkaganga þar sem gengið er eftir láréttum trádrumbi með ekkert fyrir neðan þig, og ýmislegt annað í svipuðum dúr.

Risarólan
Risarólan er nýung á Íslandi þar sem þáttakendur fara í stærri rólusveig en áður hefur sést á Íslandi! Öryggið er algert.

Staurinn
 
Staurinn er 10 metra hár. Það geta  allir spreytt sig á staurnum og með réttri hvatningu geta flestir staðið upp á honum. Takmarkið er að standa uppréttur efst á staurnum og stökkva síðan af honum út í loftið í frjálsu falli. Sagt er að upplifunin sé svipuð og að svífa tímabundið í þyngdarleysi í geimnum - þar til líflínan tekur í og þú upplifir þyngdaraflið í 2G!
Minniháttar erfiðleikar í vinnunni virðast hlægilega auðleystir eftir þessa upplifun. 

Klifur og sig
Klifur og sig eru sígild verkefni og henta jafnt byrjendum sem reyndum fjallagörpum.  Klifrið er ekki bara á hefðbundnum klifurvegg heldur líka stórskemmtilegt þrautaklifur.

Kynntu þér allt sem Adrenalíngarðurinn hefur upp á að bjóða á heimasíðu þeirra www.adrenalin.is

 

Heimild: vefsíða Adrenalíngarðsins www.adrenalin.is

 
hollywood