• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow M16 Hópefli - Skemmtun og sameining
Deila á Facebook
M16 Hópefli - Skemmtun og sameining Prenta Senda frétt

M16

M-16 notar laserbyssur og skemmtilegar þrautir til að skemmta og þjálfa hópinn allt árið um kring. Árangursrík blanda af gagnlegum æfingum og skemmtun fyrir hópa.

Hópnum er skipt í tvær eða fleiri hersveitir sem berjast með laserbyssum og leysa spennandi liðsheildarþrautir á undan hinum hersveitunum.
M16
M16 hentar fyrir fólk á öllum aldri af báðum kynjum en áherslurnar er misjafnar eftir því hvað hópurinn vill ná fram. Það sem er í boði eru tvær megin leiðir afþreying eða þjálfun.

Ef hópurinn þinn leitar eftir spennandi leikjum sem fá adrenalínið til að flæða og þjappa hópnum saman þá hentar M16. Þeir fá oft spurninguna er þetta erfitt, þarf hópurinn að vera í góðu líkamlegu formi. Svarið er að hver leikmaður spilar leikina á sínum hraða. Liðið tekur tillit til þess þegar ákveðið er hvernig á að spila leikinn.

Tilefnið til að skella sér í M16 ferð þarf ekki að vera stórt. Hvort sem það er að fara í skemmtiferð, óvissuferð, hópefli eða hvataferðir...þá er M16 málið.

 

Heimild: vefsíða www.m16.is

 
hollywood