• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Flúðasiglingar með Ævintýraferðum
Deila á Facebook
Flúðasiglingar með Ævintýraferðum Prenta Senda frétt

rafting Ævintýraferðir í Skagafirði voru stofnaðar árið 1992 til að svara ört vaxandi eftirspurn eftir ferðum sem byggja á spennandi og skemmtilegri útiveru. Sérstök áhersla hefur verið lögð á flúðasiglingar (white water rafting) og er Varmahlíð nú miðpunktur flúðasiglinga á Íslandi.

Öryggi og velferð gesta er aðalsmerki Ævintýraferða.
Í 15 ár hefur þaulreyndur hópur innlendra og erlendra starfsmanna tryggt þúsundum siglingafólks ógleymanlega upplifun í stórkostlegri nátturu landsins.

Boðið er uppá 4 mismunandi ferðir þar sem allir aldurshópar geti fundi eitthvað við sitt hæfi. Til gamans, yngsti gesturinn okkar til þessa er 6 ára og sá elsti 86 ára.

Flúðasiglingar eru starfræktar frá apríl/maí - september/ október.

Ævintýraferðir er fullréttinda fyrirtæki í ferðaþjónustu sem skipuleggur einnig mikið af óvissu- og sérferðum með áherslu á náttúru landsins og virka þátttöku gesta. 

Allar nánari upplýsingar er að finna á www.rafting.is  

 

 

Heimild: www.rafting.is  

 
hollywood