• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Fjórhjólaferðir um Bolöldu og Hengilsvæði
Deila á Facebook
Fjórhjólaferðir um Bolöldu og Hengilsvæði Prenta Senda frétt

Mynd: Fjórhjólaleigan ehf.Fjórhjólaleigan er nýr armur fyrirtækisins Lúxus Ævintýrareisur. Í boði eru fjölbreyttar ferðir m.a. um Hengilsvæði og Bolöldu í fylgd leiðsögumanns.  Bolöldusvæði er himnaríki útivistarmannsins, fara á fjórhjólum inní Jósepsdal á sérútbúnum brautum fyrir fjórhjól er skemmtun fyrir alla fjölskylduna.

 

Fyrirtækið á 30 hjól af gerðinni Yamaha Grizzly árgerð 2008.

Meðal ferða sem Fjórhjólaleigan býður upp á má nefna: Mynd: Fjórhjólaferðir ehf.

Klukkatíma ferð um Jósepsdal

Farið er uppí Jósepsdal í sérstökum fjórhjólabrautum. Þessi braut er ætluð öllum og er útsýnið ótrúlegt allann tímann. Farið er inní Jósepsdal sem er lokaður með fjöllum allt í kring.
 
2 tíma ferð um Hengilsvæði
 
Að fara uppá Hengilsvæði er eins og að koma í nýja veröld, ótrúlegt útivistasvæði og stórkostleg náttura. Í 2 tíma ferð um Hengil má sjá borholur, hraun og allt það sem íslensk náttúra hefur uppá á að bjóða.
 
Hálfur dagur um Bolöldu og Hengil

Þessi ferð er blanda af okkur eins og tveggja tíma ferðum. Farið er upp í Jósepsdal og keyrt að námunum, farið yfir þjóðveg 1 og haldið áfram uppá Hengilssvæði.
 
 
 
Aðrar ferðir 
 
Einnig er boðið upp á steggja- og gæsaferðir sem er alltaf vinsælt ásamt sérstökum "vinnuferðum" þegar vinnustaðurinn eða starfsmannafélög ætla að gera sér glaðan dag. 
 
 
Hver fjórhjólaferð er um 45-55 mín. Farið er með leiðsögumanni öryggisins vegna. Hann mun kenna þér á hjólið og vera þér til aðstoðar alla ferðina. Þú munt keyra á eftir leiðsögumanninum og hann mun tryggja þér örugga og um fram allt skemmtilega ferð
 
 
Nánari upplýsingar um Fjórhjólaleiguna:
 
Netfang:     Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Fjórhjólaleigan.is
Askalind 8
201 Kópavogur
Iceland
 
Sími: 5771155 (24/7)
Fax:  5880446
 
  
 
   

 
hollywood