• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Sæferðir bjóða fjölbreyttar ferðir
Deila á Facebook
Sæferðir bjóða fjölbreyttar ferðir Prenta Senda frétt
Mynd:Saeferdir.isSæferðir bjóða upp á úrval af ferðum á sjó frá Snæfellsnesi. Það eru úr nægu að velja! Heimsókn í hina fornfrægu Flatey, hvalaskoðun, fuglaskoðun eða fengið að smakka hráa hörpuskel beint af hafsbotninum svo fátt eitt sé nefnt. Einnig á fyrirtækið ferjuna Baldur sem siglir yfir Breiðafjörðinn með viðkomu í Flatey.

Sæferðir í Stykkishólmi hafa yfir 20 ára reynslu í skemmtisiglingum á Breiðafirði. Fyrirtækið var stofnað árið 1986, hefur vaxið ört síðan og er í dag eitt af stærstu afþreyingarfyrirtækjum á landsbyggðinni. Fyrirtækið á og rekur fjóra báta þar sem öll tæki uppfylla ströngustu öryggiskröfur.

Dæmi um ferðir sem Sæferðir bjóða upp á eru:

Ævintýrasiglingar Mynd:Saeferdir.is

Ævintýrasigling Breiðafjarðar (Suðureyjasigling) er vinsælasta ferðin þeirra. Þar er siglt um eyjarnar óteljandi, skyggnst inn í ævintýraheim Breiðafjarðar, skoðaðar fjölbreytilegar bergmyndanir, sögulegar slóðir og sterkustu sjávarfallastraumar við Íslandsstrendur.

Dagsferð til Flateyjar

Flatey er ein af náttúruperlum landsins og þekkt fyrir sitt einstaka tímaleysi. Á eyjunni búa í dag 5 einstaklingar allt árið um kring, en á sumrin bætast við ferðamenn og eigendur sumarhúsa sem margir hverjir eiga ættir sýnar að rekja til Flateyjar. 

Ferjan Baldur 

Ferjan Baldur siglir daglega yfir Breiðafjörð frá Stykkishólmi til Brjánslækjar , með viðkomu í Flatey.
Um borð er góður veitingastaður og frábær aðstaða fyrir farþega. Á leiðinni er hægt að slaka á og njóta útsýnisins en á sama tíma spara tíma þar sem siglingin tekur skemmri tíma en að keyra.

 

Auk þessara ferða eru fleiri í boði en allar upplýsingar um þær er að finna á heimasíðu Sæferða   

 

 

Heimild: www.saeferdir.is  

 
karoki