• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Kajakferðir á Stokkseyri
Deila á Facebook
Kajakferðir á Stokkseyri Prenta Senda frétt

Mynd: kajak.isKajakaferðir ehf. bjóða upp á nýstárlega möguleika til náttúruskoðunar. Róið er á kajökum um hin sérkennilegu lón einnar fegurstu fjöru sem Ísland á og vatnasvæðið vestan byggðarinnar á Stokkseyri. Þar tengja þröngar rásir litlar og stórar tjarnir og þrífst þar aragrúi og fugla og jurta.

Þar endar líka Flóaáveitan, þetta stórmerkilega mannvirki, sem unnið var á árunum 1918 til 1927 og nær yfir 12 þúsund hektara lands. Gengið hefur verið úr skugga um, í samvinnu við aðila úr Fuglaverndunarfélagi Íslands og Náttúruverndarráði að þessi leið til náttúruskoðunar raskar á engan hátt tilveru dýra og jurta á svæðinu. T.d. má sjá forvitna seli fylgja kajökunum eftir þegar siglt er á lónunum, ótrúlega nálægt, alls óhrædda.

Fyrir utan þessa óvenjulegu leið til að skoða náttúruna eru kajakasiglingar sérlega friðsæl og skemmtileg afþreying, reynsla sem gleymist ekki. Það skal tekið fram að sérstök áhersla er lögð á öryggisþáttinn; svo vitað sé er þetta eina kajakaleigan á landinu sem notar eingöngu "Sit-on-top" kajaka, sem eru öruggustu kajakar sem völ er á og hafa á undanförnum árum náð miklum vinsældum t.d. í Bandaríkjunum og víðar. Þeir eru einnig notaðir við björgunarstörf erlendis.

Bátaflotin Kjakferða tekur 50 manna hóp í ferð. Boðið er upp á ýmsa möguleika í ferðum fyrir hópa, fjölskyldur og einstaklinga. 

Þess má geta að einnig er boðið upp á sérstakar gæsa- og steggjaferðir og fær gæsin/steggurinn fría ferð og sérstakan bát ef óskað er. 

Nánar á heimasíðu Kjakferða

 

Um Stokkseyri 

Stokkseyri er sjávarþorp við suðurströndina í u. þ. b. 55 km. fjarlægð frá Reykjavík ef farið er um Þrengsli og yfir Ölfusárósa. Fjöldi íbúa er nálægt 550 manns, en í eina tíð var þar fjölmennasta sveitarfélag landsins. Síðan var því skipt niður í tvö sveitarfélög Stokkseyrarhrepp og Eyrarbakkahrepp. Íbúar þorpsins hafa gætt umhverfisins einstaklega vel og þar þrífst litríkt og fjölbreytt fugla- og jurtalíf í kringum vatnasvæði, sem þar er, og einnig í fjörunni, sem rómuð er fyrir fegurð sína og myndaðist við mesta hraunrennsli sem orðið hefur í heiminum eftir ísöld, þegar Þjórsárhraun varð til.

 

Heimild: www.kjak.is

 
karoki