• Increase font size
  • Decrease font size
  • Default font size
Forsíða arrow Hópaferðir - sjá allt arrow Klettaklifur í Hvalfirði
Deila á Facebook
Klettaklifur í Hvalfirði Prenta Senda frétt
KlettaklifurArctic Rafting býður upp á klifurferðir í Eilífsdal í Hvalfirði. Þátttakendur klæða sig í sérstakt öryggisbelti sem tengir þá við öryggislínu sem leiðsögumaður stjórnar. Þannig fá allir að reyna að klifra upp þverhníptan klettavegg án þess að nokkur hætta sé á ferðum.
Ef þátttakandi missir gripið þá dettur hann ekki nema örfáa sentimetra og fær annað tækifæri til að komast á toppinn. Hér gefst þér færi á að reyna fyrir þér í klettaklifri. Að príla upp lóðrétta hamra og fjölbreytta kletta með einungis styrk þinn og útsjónarsemi til hjálpar... og auðvitað sérþjálfaða björgunarsveitamenn og öryggislínur! Línan sér til þess að þó þér fatist flugið þá sakar það ekki og þú færð aftur tækifæri til að klifra upp. Tilvalið sem hálfsdagsferð fyrir fjölskyldur og minni hópa. Þetta er skemmtileg og öðruvísi ferð sem býður upp á fallegt umhverfi og ævintýri í næsta nágrenni við Reykjavík.

Smáatriði:

Fyrri reynsla af klettaklifri er ekki nauðsynleg.

Í boði frá maí til september (Ath. háð veðri).  Pick–up frá Reykjavík og flestum gististöðum á Suðurlandi er í boði sé þess óskað. Fjarlægð frá Reykjavík: 50 km. Lengd ferðar 3 - 5 klst. Lágmark: 4 manns. Hámark 10 manns. Verð 5.900 ISK. Með pick-up: 7.900 ISK. Aldurstakmark: 12 ár. Hægt er að bæta hádegismat við þessa verð fyrir 1.500 kr.

Þáttakendur verða að taka með sér:
hlýjan útivistarfatnað, vatnsheldan jakka og buxur og hlýja peysu.


Ath: Sértu í leit að adrenalíni þarftu ekki að leita lengra. Arctic Rafting getur sérhannað fyrir þig og þína klettaklifur af hvaða erfiðleikastigi sem er, hvar sem aðstæður leyfa á landinu.
 
 
karoki